Krúslan
Dagsetning
21. mars 2010
19.04.2007 07:03:01 / Krúsla

Þá er það CURVES

Halló allir (þið sem enn nennið að fylgjast með mér:) )

Nú er ég byrjuð eina ferðina enn,,en ekki í neinni uppgjöf sko,,heldur á nýjum grunni. Nú er líkamsræktarkerfið "CURVES" að opna hér í Reykjanesbæ,,og mín fór auðvitað í prufu á þriðjudag,,og svo í tækin í gær,,,og leist mjög vel á, meira að segja svo vel að ég skráði mig in og er bara byrjuð :) ,,,,þannig að það eru góðir hlutir að gerast hjá mér,,,er bara spennt og hlakka til að fara að hreyfa mig reglulega.

Mataræðið aftur á móti er ekki búið að vera neitt DDV, því miður,,,meira svona sukk og svínarí :(  ,,, en vitið þið hvað,,ég ætla ekki að draga mig niður fyrir það,,heldur bara að byrja upp á nýtt,,eins og ég veit að ég get. Svo nú er það bara einn dagur í einu,,,og hver dagur sem er 50& DDV eða meira,,,er bara sigur:)

Sporavinnan mín hefur tekið svolítið frá mér orku og tíma,,en nú þarf ég bara að beina orkunni að heilsunni minni,,til að hreinlega hafa orku í að geta gert það sem ég vil gera. Finn það að uppgjöfin var að taka völdin hjá mér,,en sem betur fer, þá á ég góðar vinkonur sem eru í sama pakka og ég,,,og við hittumst um daginn og nú erum við bara að sparka í rassinn hver á annari,,,og það er einmitt það sem við þurfum,,,til að koma okkur í gírinn aftur.

Læt þetta duga í bili,,en nú verður skrifað hér reglulega,,,minnst 2x í viku:)

Þangað til næst;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 09:50:11 / Krúsla

LONG TIME NO SEE :)

8|8|Jæja,,,er ekki kominn tíma á að lifna við hehe. Gleðilegt nýtt ár allir:haha:,,vona að nýja árið fari vel í ykkur. Hjá mér er þetta bara búið að vera hrikalega erfitt:S:$:cry:,,svona matarlega séð. Búin að vera bara á beit í sukki,,og virðist bara ekki geta hætt:S,,,skil þetta ekki,,,en er alltaf að vona og trúa því að þetta komi:lol:.

Annars fóru jólin vel í mig,,við vorum saman ég og bróðir minn, með fjölskyldur okkar,,alveg yndislegt,,,og allir bara nutu sín. Ekki það að ég hafi ekki átt fín jól síðustu árin,,en núna var ég heima hjá mér,,og það geri ég framveigis,,alveg á hreinu,,hef yfirleitt verið hjá mömmu,,sem er líka yndislegt,,en bara öðruvisi:) ,,því heima er best,,ekki satt;)???

Þessa dagana er ég á fullu í sporavinnu,,og ætla að reyna að nýta mér hana í mataræðinu líka,,,,bara á hnjánum að biðja um "æðruleysi til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt,,,kjark til að breyta því sem ég get breytt,,,og vit til að greina þar á milli"  Mæli með að ALLIR prófi þetta,,,þetta er auðvitað bara mannrækt af bestu gerð:)

Vona að ég sé ekki of djúp fyrir neinn:) Læt heyra í mér fljótlega;)

Þangað til næst;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 12:53:14 / Krúsla

TAKK FYRIR SPÖRKIN

TAKK TAKK, þið eruð æði,,,ég er alveg orðin blá og marin í afturendanum :haha:(sem er fínt), þannig að þetta er líklega eitthvað að virka.

Annars gengur þetta svona upp og niður,,,allavega fór viktin niður síðast,,,reyndar bara 700g ,,,, en niður er alltaf niður:lol:

Það er eins og ég nái ekki að taka til í hausnum á mér,,,skil þetta ekki,,,,því ég veit alveg nákvæmlega hvað ég þarf að gera,,,en finnst nú samt að þetta sé að mjakast í rétta átt,,,en það mjakast bara svo ansk.. hægt:S :$:S

Ég var að renna niður alveg dýrindis bláberja-pönnukökum með sýrðum og jarðaberjum,,auðvitað allt DDv-vænt:),,sá þetta inn á spjallinu,,,mæli með að þið prófið,,,algjört nammi. Er búin að prófa 3 uppskriftir þessa vikuna (eins og Sóley sagði okkur að gera, og ég reyni auðvitað að hlýða hehe) þær eru, kjúklinga-lasagna, kjúklingur i karrý og svo pönnukökurnar góðu:) ,,þannig að mér finnst ég bara nokkuð dugleg,,,þó ekki hafi alveg tekist að vera 100% DDV

Þangað til næst;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 07:06:18 / Krúsla

Spark í rassinn, TAKK

Jæja,,,góðan daginn:S:S,,,,,þetta er ekki alveg að ganga hjá mér,,,hvorki bloggið eða mataræðið:$

Þarf virkilega spark í rassinn,,,,auglýsi hér með eftir SPÖRKUM Í RASSINN,,,öll spörk þegin.  Er bara búin að vera í sukki og svínaríi,,,engin afsökun,,,bara staðreynd. Og nú á eina ferðina enn að reyna að rífa sig upp og byrja aftur, og aftur, og aftur,,,hehe orðið soltið þreytt,,,en ég neita að gefast upp,,,,svo endilega sparkið að vild,,,,kannski gerist eitthvað:|8|8|

Þangað til næst (eða eftir mörg spörk) :haha:


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 09:36:14 / Krúsla

Þungt vesti:)

Fór í viktun í gær,,,,,+300g,,,og þegar ég kom heim, þá viktaði ég vestið sem ég var í (þegar ég var viktuð) og viti menn það viktaðist 260g :) og þá bætti ég við úrinu á viktina og þá náðin þetta næstum 300g,,,þannig að þetta var semsagt vestið sem ég þyngdist um :haha::haha::haha::haha::haha::haha:

Nei svona í alvöru talað,,,þá er ég búin að vera mjög dugleg,,bæði í mataræðinu og hreyfingunni,,,og kannski er það einmitt hreyfingin sem er að hægja á léttingnum:)  og það er bara allt í lagi,,því ég er að sjá hellings mun bæði á rass og maga:D:D og það segir mér að ég sé að gera það eina rétta;)

Missti mig reyndar aðeins á sunnudaginn,,,,fór með syni mínum á BurgerKing hehemmm,,,(hann langaði svo rosalega mikið,,og segir að mamma vilji aldrei kaupa neitt gott :)  ) en það kemur ekki fyrir aftur í bráð,,,því get ég lofað,,,leið alls ekki vel í maganum á eftir uffffff,,,bara allt stiflað :S:haha::S

En annars allt í fína hér,,,held bara áfram að labba, yogast og Pilates-ast hehe,,,þá fer þetta allt vel.

Þangað til næst;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 21:29:08 / Krúsla

Allt í góðu standi hér,,,,

Já já, hefði nú haldið það,,,allt á bullandi niðursveiflu hér,,,sko kílóniðursveiflu :):)

Fór í viktun áðan og 1,1kg farið þessa vikuna,,,reyndar bætti ég á mig 200gr síðast:$ en það þýðir ekkert að vera að velta sér upp úr því.

Er búin að vera þvílíkt dugleg í labbinu, 5-6x í viku, og byrjuð í Yoga og Pilates (mín algjörlega orðin ofvirk hehe) en um að gera að njóta þess bara á meðan maður er í stuði.

Nú á ég meira að segja mp3 spilara, og geng nú um eins og unglingarnir og hlusta á músik, algjör draumur. Nú get ég hlustað á allt Rockstar Supernova "rokkið" á meðan ég labba,,,bara gaman.

Pabbi var svo yndislegur að gefa mér spilara frá útlöndum:D:D svona snemmbúin afmælisgjöf:lol: svo nú er ég alltaf að "downloada" musik.

Læt þetta duga í bili,,,vona að ykkur gangi vel dúllur,,,og Eva, láttu mig vita hvernig gengur;) 

Áfram Magni,,,þú rokkar 8)8)

Þangað til næst;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 21:16:05 / Krúsla

TAKK TAKK TAKK,,,,

Æði að sjá svona marga kvitta:lol::lol: nú veit ég að þið eruð að fylgjast með mér,,,,og trúið mér, ég þarf það:)  Þið eruð æði, og já Myrkur, ég er hef einmitt hugsað þetta sama, og veit auðvitað að margir hugsa svona:S og það er nú ekki eins og hann sé neitt fullkominn sko;) , en það sorglega er að ég skil alveg hans hugsun, hef lennt í svipuðu, þar sem ég kynnstist frábærum manni í alla staði nema, hann var of mikill fyrir mig:$ svo kannski á ég að læra eitthvað á þessu,,,,veit ekki;) ,,ég bara kann ekki að vera svona mikil eins og ég er,,,,var alltaf bara venjuleg, þangað til fyrir 5-6 árum:cry:

En þetta hefur nú bara haft frábær áhrif á mig,,,,mín bara út að labba 5-6 X í viku og púlandi í magaæfingum og ég veit ekki hvað og hvað:lol::lol: , þannig að ég held ég fari bara bráðum og þakki honum fyrir hahahahaha nei segji svona.

Svo má nú ekki gleyma að ég fór í viktun í gær,,,og 500g farin, hefði alveg viljað meira, en ég hugsa þetta nú bara sem svo að það hafa farið 2,1 kg á tveim vikum, og það er frábært,,,því ég stefni einmitt á að reyna að halda mig við 800-1000g á viku, að meðaltali8),,,,þannig að þetta er allt í rétta átt;)

Og gleðifréttir,,,ekki má gleyma því,,,,fékk að vita í dag að ég fæ ráðningu fram að áramótum (allavega). Annars væri ég orðin atvinnulaus í dag (30/8),,,.þannig að það eru fullt af góðum hlutum að gerast.

Tísti litli (kettlingurinn okkar), fór í geldingu á mánudag, greyið litla,,,en virðist nú nokkuð sprækur bara,,,þó karlmennskan hafi verið tekin í burtu:lol::lol:

Læt þetta duga í bili, þarf að fara blogghring;)

Þangað til næst;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 15:10:46 / Krúsla

YES YES,,,

-1,4 kg. :lol::lol: haustið ætlar að byrja vel,,,,og ég mjög sátt við að vera byrjuð aftur,,,bara gaman:D:D. Er á fullu að prófa nýjar uppskriftir og það er alltaf jafngaman.

Bætti nýrri við á tenglana hjá mér "toty" kíkið á hana,,,annars er ég alls ekki nógu dugleg að kikja inn á síður hjá öðrum eða setja inn færslur hérna,,,finn mér einfaldlega ekki tíma,,,mikið að gera í matargerð;);) og pælingum um hvað skal borða hér og þar hehe.

Er að les frábæra bók sem heitir "Láttu ljós þitt skína" og þar er svo margt uppbyggjandi fyrir mann,,,,er að reyna að tileinka mér ýmislegt úr þessari bók. T.d. bara þetta að vera " góð " við sjálfa mig,,,hugsa fallega um mig og til mín,,,held það skifti rosalega miklu máli í svona átaki. Mæli með þessari bók, fyrir allar konur,,,,og eflaust karla líka:lol::lol: 

Er farin að ganga reglulega og geri svo æfingar strax á eftir,,,,og líður svo vel með það:D:D Ættla að búa til æfinga-plan, þarf bara smá hjálp, þannig að þetta sé markvisst hjá mér. En á meðan ekkert plan er til, þá geng ég hringinn minn (ca 35-40 mín, og alltaf á grasi/móa) og geri þessa "basic" æfingar, sem ég kann:lol::lol:  Er svo mikið að spá í hvað ég á að fara núna í haust, sá auglýst "Dansjóga" og líst rosalega vel á það, en svo sá ég líka "Pilates" auglýst og það finnst mér mjög spennó, þannig að ég er soltið lost í þessu öllu. Allar tillögur vel þegnar, um hvað væri sniðugast fyrir mig:lol:

Annars bara allt í gúddíi og helgin fram undan :lol::lol: vona að þið hafið frábæra helgi og njótið lífsins,,,,það ættla ég að gera:lol: ,,,,,og endilega kvittið fyrir ykkur, það er svo gaman að heyra í ykkur. Stundum hafa 50 manns kíkt hér inn á dag, og enginn kvittað:(

Þangað til næst;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 00:34:39 / Krúsla

Loksins loksins,,,,

Sumarfríið búið og hægt að byrja aftur á prógramminu:lol::lol: góð afsökun hehe. Nei nei, alveg satt komin af stað einu sinni enn, og nú á sko að taka á því. Fór í viktun á mánudaginn og hafði hvorki þyngst eða lést um gramm :lol: síðan síðast , þannig að ég get nú bara verið nokkuð sátt. Það var nefnilega alltaf planið að halda sér bara í sömu þyngd, þangað til tekið yrði á því aftur;)

Fékk aldeilis spark í rassinn sko,,, var farin að hitta mann , sem mér leist nú bara þokkalega á, og allt var bara í góðu standi (hélt ég) en nei, þá allt í einu fannst honum ég aðeins mikið of  "mjúk " fyrir sinn smekk, þannig að þetta var nú bara bóla:S  EN,,, það góða er að ég þurfti soltið að fá að heyra svona bara beint í æð, því það er ekki eins og ég viti ekki að ég sé allt of feit, en stundum nær maður bara að útiloka það, og þá fer maður að slaka á í prógramminu.

Þannig að ég ætla bara að líta á þetta sem jákvætt fyrir mig og halda áfram leið minni að  kjörþyngd:lol:   Það er svosem ekkert eins og ég hafi verið orðin ástfangin eða neitt, en samt soltið spennt, þannig að þetta er nú eiginlega bæði fúlt og gott:(:D (ein að reyna að vera voða jákvæð hehe)

En nóg um þessa kalla (allavega í bili;) ) er semsagt komin á fullt aftur, og nú verður ekki aftur snúið.

Það væri kannski flott markmið að stefna á að verð "skutla" innan 6 mánaða, og fara þá og banka upp á hjá honum og segja " Sá sem vill ekki þegar hann fær, hann fær ekki þegar hann vill" og ganga hlæjandi í burtu:D:D

Þangað til næst;)

Vá 30 búnir að skoða í dag (22.ágúst) og enginn kvittað:^):^) ,,eins og það er gaman:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 10:56:49 / Krúsla

Sumarið er tíminn :)

Já, sumarið er tíminn þar sem bloggið er ekki í fyrssta sæti:$:$ hehemmmm:S gengur samt fínt í programminu, þó það sé nú ekki 100%

Hafði mist 300g í síðustu viktun, sem var fyrir næstum 2 vikum, sumarfrí hjá DDV í Kef núna, þannig að það er engin viktun hér fyrr en um miðjan ágúst, sem er auðvitað stór hættulegt, en við ætlum nú nokkrar að kíkja svona annað slagið í Garðabæinn, þýðir ekkert annað:haha:

Búið að vera brjálað að gera hjá mér, en aðeins að róast núna. Er að fara að sækja kettling í dag, hlakkar svo til að fá eina krúsídúllu hingað inn. Sonurinn alveg að fara yfir um af spenningi:lol:

Þangað til næst;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 17:16:08 / Krúsla

Bakan góða

Jæja nú að líða að næstu viktun, sem er á morgun; og vikan gengið mjög vel, fyrir utan pínuponsuoggulítið svindl :S:S, en það var í gærkvöldi og allt vinkonu minni að kenna:lol:, nei segi bara svona. Stalst semsagt í smá súkkulaði, en ekki mikið, og ætla ekki að velta mér upp úr þessu.

Annars allt í góðu standi, er með brokkolí-böku í ofninum mmmm, hlakka til að fá mér, er bara ný búin að prófa þetta og mæli sko með þessu. Læt uppskriftina flakka, fékk han hjá Sóley “viktara” í Keflavík.

Brokkolí bakan hennar Sóley

 

6 tsk hveiti

6 tsk létt majó

salt og pipar

Hrært saman, verður svona soltið klessulegt, en það er allt í lagi:lol: , setja svo “klessuna” í lítið eldfast form, og móta það svona eins og formið, það er að segja upp með hliðunum líka. Baka þetta í 15-20 mín á 180 gráður (finn ekki merkið)

 Á meðan þetta bakast, þá geri ég innihaldið tilbúið.

2stk.hrærð egg , kannski smá salt og pipar útí

 Brokkolí, eða hvað grænmeti sem er.

Kannski smá feta, en þá set ég eitt egg, nema ég sé með tvö lítil egg.

Skella þessu svo ofan í degið, þegar það er búið að bakast, og aftur inn í ofn í 15-20 mín. Rosa gott

 

 

Þangað til næst, sem er eftir viktun;)

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 20:44:46 / Krúsla

Sól sól skín á mig.....

Jæja loksins skín blessuð sólin, verst að geta ekki notið hennar, er að vinna extra mikið þessa dagana og verð að því út næstu, viku. Vona bara að "sólarkvótinn" á klakanum verði ekki búinn þá:lol::lol::haha::haha: hrikalega er ég fyndin:lol::haha:

Dreif mig í viktun á mánudag, og hafði bara bætt á mig 400g, þokkalega ánægð með það, enda fjórar vikur síðan ég fór síðast í viktun. Búin að vera á þvílíku sukki í þrjár vikur, en rosa dugleg í síðustu viku, þannig að ég held að það hafi bjargað mér8| .

Þetta er dagur númer 9 í 100% DDV, og það gengur svona líka glimrandi vel, er varla að trúa þessu ennþá:D:D , en vissi nú alltaf innst inni að "andinn" sko "heilsu-andinn" kæmi yfir mig aftur, þetta var bara spurning um tíma:lol::lol:

Annars gengur þetta allt voða vel, og maður er bara þakklátur fyrir hvern dag sem gengur vel, vona að það gangi eins vel hjá ykkur:haha::haha:

Þangað til næst;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 07:45:16 / Krúsla

HÆ HÓ JÍBBBÍI JEIII OG JIBBBÍÍÍ JEII, ÞAÐ ER KOMINN 17. JÚNÍ

Jæja, þá er heldur betur kominn tími á skrif hér inn:S , er eiginlega búin að vera að prófa sjálfa mig, og sjá hvort ég entist í prógramminu í nokkra daga, áður en ég færi að tala (einu sinni enn) um að þetta væri allt að koma. Er orðin mjög leið á sjálfri mér, og þessum endalausu föllum og sukki. En nú er ég búin að fylgja DDV í 4 heila daga:lol:, þannig að  ég vona (og verð að trúa) að núna sé þetta loksins að komast í gang aftur.

Hef ekki einu sinni farið í viktun í 3 vikur, hreinlega þorði því ekki, en fer á mánudaginn ALVEG POTTÞÉTT8) .  Hef verið að ganga líka og gera æfingar hér heima, maga-æfingar á bolta og smá svona fyrir rassinn og læri;) , og líður auðvitað miklu betur, það er ekki spurning.

Málið er nefnilega hjá mér, að ef ég er ekki að hugsa um mig, þá bæði líkamlega og andlega, þá hreinlega fer ég í þunglyndi, og þá er svo hrikalega erfitt að komast aftur upp, og í gírinn:S , en ég aftur á móti veit nákvæmlega hvað ég þarf að gera til að líða betur, og það er einmitt þetta, að borða rétt og hreyfa mig, svo einfalt er það nú;)

En ég er semsagt komin aftur af stað:D . Best að kíkja blogghring, hef saknað ykkar mikið, og hlakka til endurfundanna:D

Þangað til næst;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 09:39:32 / Krúsla

HJÁÁÁLP

Nú er orðið ansi langt síðan ég setti eitthvað inn hér síðast:S enda ekki gengið sem skyldi, og þá langar mig ekkert að skrifa neitt. Er búin að vera með nammi-púkann í heimsókn ansi lengi núna, og skil þetta bara ekki, er ekki að takast að ná mér upp úr þessu. Vill auðvitað alls ekki bæta á mig aftur, og á eftir fullt af kílóum í viðbót, en er bara ekki að standa mig.

Vona að þetta sé að koma hjá mér, það bara veður að vera þannig. Vantar pepp frá ykkur, nú sem aldrei fyrr HJÁÁÁÁLP er að fríka á sjálfri mér. Endilega ef þig getið sagt mér eitthvað uppörvandi, þá þigg ég það

Þangað til næst;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 10:47:42 / Krúsla

Fúlt ,,,,

fúlt fúlt,,, Blogg.Central,,,,, var búin að skrifa heilan helling og svo bara hvarf allt, ekki ánægð sko:evil:

En semsagt, það bættust á mig 1,1 kg. í síðustu viktun:cry:, og mín bara í mínus, auðvitað, en ekki búin að gefast upp samt:S

Þegar best gekk hjá mér, var ég búin að missa 10,3kg, en í dag eru þau 7,1kg, alveg sorglegt, en eins og ég sagði áðan er ég ekki hætt;)

Ætla að hafa þetta stutt núna, en bæti kannski við á eftir.

 

 



Þangað til næst;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan
Leitarbox